Margt líkt með ástandinu nú og vorið 2015

Til að bæta gráu ofan á svart lagði Steven Gerrard skóna á hilluna vorið 2015 og Raheem Sterling fór til Manchester City um sumarið.

Samkvæmt frétt spænska íþróttablaðsins AS hafa forsvarsmenn Liverpool sett sig í samband við kollega sina hjá Real Madrid til að grennslast fyrir um hvað fór úrskeiðis á stuttri stjóratíð Xabi Alonso hjá félaginu.

Ekki fer leynt að Alonso er í hávegum hafður hjá stuðningsmönnum Liverpool. Ráðamenn félagsins eru hins vegar ekki alveg sannfærðir um að hann sé rétti maðurinn verði Arne Slot látinn róa. Leituðu því til Real Madrid skv. AS eftir nánari upplýsingum um kosti hans og veikleika.

James Pearce blaðamaður hjá The Athletic telur að stemningin á meðal stuðningsmanna Liverpool minni um margt á vorið 2015 undir stjórn Brendan Rodgers.

Eftir að hafa misst naumlega af titlinum árið áður seldi félagið m.a. Luis Suarez, Pepe Reina og Daniel Agger auk smærri spámanna og keypti leikmenn eins og Adam Lallana, Dejan Lovren, Ricky Lambert, Divock Origi, Caomhin Kelleher, Emre Can, Alberto Moreno og “undrabarnið” Lazar Markovic að ógleymdum Mario Balotelli.

Þessar miklu hræringar á leikmannahópnum skiluðu litlu leiktíðina 2014-15. Liverpool vann aðeins t.d. einn af sjö síðustu leikjunum á leiktíðinni og hafnaði í 6. sæti.

Til að bæta gráu ofan á svart lagði Steven Gerrard skóna á hilluna vorið 2015 og Raheem Sterling fór til Manchester City um sumarið.

Lokaleikur Gerrard varð 1:6 tap (0:5 í hálfleik!) gegn Stoke City. Gerrard skoraði reyndar eina mark Liverpool en þessi leikur fer á spjöld sögunnar sem eitthvert mest niðurlægjandi tap Liverpool það sem af er öldinni.

En Brendan Rodgers hélt samt starfinu … þar til í október þetta sama ár þegar Klopp leysti hann af hólmi.

No comments yet