Orðrómur um að Richard Hughes, yfirmaður knattspyrnumála hjá Liverpool, sé á leið til Al-Hilal i Sádí-Aabíu hefur verið þrálátur í sumar.
Það kom því eins og þruma úr heiðskíru lofti í dag þegar tilkynnt var að Michael Edwards, yfirmaður knattspyrnumála (CEO of Football) hjá FSG, eigendum félagsins, hefði sagt stöðu sinni lausri og myndi hætta tafarlaust, ári áður en samningur hans átti að renna út.
Edwards var lengi talinn heilinn á bak við helstu leikmannakaup Liverpool á fyrstu árum Jürgen Klopp en hætti störfum árið 2022.
Hann sneri svo aftur árið 2024 ásamt Richard Hughes, strax í kjölfar þess að Klopp hætti. Kvittur var á kreiki um að þeim hefði sinnast á sínum tíma en slíkt hefur aldrei verið staðfest.
Uppsögn Edwards kemur á sérkennilegum tíma, einmitt þegar veruleg þörf er á að styðja við bak nýs stjóra. Yfirvofandi brotthvarf Hughes bætir ekki úr skák.
Talið er að Edwards hafi snúið aftur á sínum tíma vegna hugmynda FSG um að kaupa fleiri lið í Evrópu og feta þar með sömu braut og fleiri stórlið hafa gert. Honum var ætlað að stýra þeirri vegferð.
Þegar þau áform gengu ekki eftir (reynt var við Bordeaux og Getafe) leit Edwards svo á að forsendurnar fyrir ráðningu hans væri brostnar. Hann tilkynnti félaginu þetta í haust en ákvað að vera áfram, Hughes til stuðnings.
Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.
No comments yet