Fréttir sem berast frá Úrúgvæ herma að Darwin Nunez muni snúa aftur til Liverpool fyrir næstu leiktíð. Tíðindunum fylgir sá viðauki að þetta verði ekki tilkynnt fyrr en að afloknu HM 2026 vestanhafs.
Nunez kom til Liverpool sumarið 2022. Þrátt fyrir að hann sýndi of sjaldan sínar bestu hliðar var hann í miklu uppáhaldi hjá stuðningsmönnum.
Nunez lék alls 95 leiki fyrir Liverpool í Premier League, skoraði 25 mörk og átti 13 stoðsendingar.
Nunez yfirgaf Liverpool fyrir ári og gekk til liðs við Al Hilal í Sádí-Arabíu. Eftir þokkalega byrjun fór að halla undan fæti hjá honum og hann samdi að endingu um að samningum við hann yrði rift.
Nunez hefur ítrekað lýst því yfir að hann eigi þá ósk heitasta að snúa aftur til Liverpool. Gangi það eftir væri um mjög óvenjulegan viðsnúning að ræða.
No comments yet