Þolinmæði var lykillinn að velgengni Iraola hjá Bournemouth

Eftir 9 fyrstu leikina í Premier League var Bournemouth í næst neðsta sæti með 3 stig eftir þrjú jafntefli og sex töp.

Óhætt er að segja að upphafið á ferli Andoni Iraola hafi ekki verið sérlega gæfulegt hjá Bournemouth haustið 2023 eftir að hann kom frá Rayo Vallecano á Spáni.

Eftir 9 fyrstu leikina í Premier League var Bournemouth í næst neðsta sæti með 3 stig eftir þrjú jafntefli og sex töp.

Leikmönnum gekk erfiðlega að laga sig að hugmyndum Iraola í fyrstu og svo fór að hann fór á fund Richard Hughes (nú hjá Liverpool) og sagði einfaldlega: “Þetta gengur ekkert hjá okkur.”

Hughes var hins vegar sannfærður um að sá grunnur sem Iraola var að leggja myndi skila árangri fyrr en seinna, aðeins þyrfti að sýna þolinmæði. Og hann þurfti ekki að bíða lengi.

Án sigurs í fyrstu 9 leikjunum haustið 2023 sneri Bournemouth taflinu við og vann 7 af næstu 9 leikjum í deild. Eftir 18 umferðir var liðið í 10. sæti og hefur í raun ekki litið um öxl síðan.

Mun Iraola njóta þessarar þolinmæði hjá Liverpool ef fyrstu skrefin verða erfið?

Okkar mat er að Iraola hafi strax í upphafi náð stuðningsmönnum á sitt band með auðmýkt og einlægum orðum. Hvort það nægir er svo önnur saga enda kröfurnar ólíkt meiri á Anfield en á Vitality Stadium - með fullri virðingu fyrir frábærum árangri þar syðra.

“Ég vil ávinna mér rétt til að verða einn af ykkur,” sagði hann þar sem hann stóð á miðjum Anfield á fimmtudag.

Er hægt að biðja um einlægari yfirlýsingu?

No comments yet