Opinber tölfræðivefur Liverpool er íslenskur!

Einhver flottasti tölfræðivefur (sá langflottasti finnst okkur) sem finna má um knattspyrnu er vefurinn lfchistory.net.

Margir Liverpool-unnendur þekkja vafalítið til þessa vefjar en fyrir þá sem ekki hafa skoðað hann er ekki eftir neinu að bíða. Þarna er bókstaflega öll tölfræði um félagið og meira til.

Þessi vefur er afrakstur ótrúlegrar elju tveggja Íslendinga, þeirra Arngríms Baldurssonar og Guðmundar Magnússonar, sem eru eins heitir stuðningsmenn Liverpool og hugsast getur. Hér má lesa nánar um þá félaga og hvernig verkefnið kom til.

Hápunktur viðurkenningarinnar á starfi þeirra er tvímælaust sá að Liverpool Football Club hefur frá árinu 2009 litið á þessa síðu sem opinbera heimild félagsins um sögu þess og tölfræði.

Fyrir bloggara eins og okkur er þessi vefur hreinn og klár fjársjóður sem við sækjum í að heita má hvern einasta dag ársins.

Við þekkjum öll slagorðið: “Ísland - bezt i heimi!” sem stundum er notað án innistæðu. En þegar kemur að þeim félögum Arngrími og Guðmundar á þetta svo sannarlega við.

Takk strákar fyrir ótrúlegan vef og 656 blaðsíðna doðrantinn The Liverpool Encyclopaedia, sem er svo annað þrekvirki út af fyrir sig.

Myndin sem fylgir færslunni er frá 2:1 sigri Liverpool á Leeds United í ensku bikarkeppninni (FA Cup) 1965. Þetta var fyrsti sigur Liverpool í keppninni en félagið varð enskur meistari árin 1964 og 1966.

No comments yet