Opta: Szoboszlai sá eini frá Liverpool í liði ársins

Tölfræðifyrirtækið Opta hefur um árabil mælt og skráð allt á milli hinins og jarðar í frammistöðu íþróttamanna í mörgum íþróttagreinum. Fyrirtækið hefur nú birt “lið ársins” í Premier League.

Valið í þetta lið byggist alfarið á tölfræðilegri greiningu leikmanna í tiltekinni stöðu á vellinum, þ.e. hver skilaði bestri tölfræði í hverri stöðu.

Það kemur kannski ekki mörgum á óvart að eini fulltrui Liverpool í þessu liði er Ungverjinn Dominik Szoboszlai, sem að öðrum ólöstuðum var besti leikmaður Liverpool á annars frekar dapurri leiktíð.

David Raya (Arsenal) er í markinu í þessu liði Opta en hann átti frábæra leiktíð. Aðrir í liðinu (uppstilling 4-3-2-1) eru þessir:

Adrian Truffert (Bournemouth, Gabriel Maghales og William Saliba (Arsenal) og Mateus Nunes (Manchester City).

Elliott Anderson (Nottingham Forest), Declan Rice (Arsenal) og Dominik Szoboszlai (Liverpool).

Bruno Fernandes (Manchester United) og Rayan Cherki (Manchester City).

Erling Håland (Manchester City).

Miðvarðaparið frá Arsenal kemur fáum á óvart en athyglisvert er að arftaki Milos Kerkez hjá Bournemouth, Adrian Truffert, er í þessu liði. Þá kemur val Mateus Nunes eflaust einhverjum á óvart.



No comments yet