Prímusmótor Bournemouth á leið til Liverpool?

Nafn Alex Scott kemur líka aftur og aftur upp en hann hefur verið prímusmótorinn á miðjunni hjá Bournemouth.

Það sem Bretarnir kalla “Silly season” er nú í fullum gangi enda ljóst að mörg lið vilja freista þess að ljúka kaupum á væntanlegum lykilleikmönnum áður en HM 2026 hefst fyrir alvöru vestanhafs.

Yan Diomande hjá RB Leipzig, sem leikið getur á báðum köntum, er sá leikmaður sem Liverpool leggur ofurkapp á að festa sér. Fleiri eru þó um hituna, m.a. PSG.

Diomande átti frábæra nýafstaðna leiktíð. Lék 33 af 34 leikjum RB Leipzig í Bundesligunni, skoraði 12 mörk og átti 8 stoðsendingar.

Nafn Alex Scott kemur líka aftur og aftur upp en hann hefur verið prímusmótorinn á miðjunni hjá Bournemouth.

Liverpool hefur lengi fylgst með honum og vorið 2023 kom sterkt til álita að kaupa hann af Bristol City. Af því varð ekki og Bournemouth tryggði sér hann.

Nokkuð ljóst er orðið að Curts Jones er staðráðinn í að yfirgefa Anfield og hefur átt í viðræðum við Inter Milan. Félögin hafa þó ekki náð saman um kaupverð. Þá er líklegt að Alexis Mac Allister verði seldur í sumar.

Auk Diomande og Scott, sem oftast eru í nefndir í slúðurpressunni, er ljóst að Liverpool leitar að hægri bakverði, miðverði og a.m.k. einum framherja. Þar eru ýmis nöfn nefnd, en ekkert sem hægt er að byggja á fremur en e.t.v. annað.

Ljóst virðist hins vegar, að Liverpool ætlar að byggja meira á ungum leikmönnum, sem fengu fá eða engin tækifæri hjá Arne Slot eins og dæmið um Rio Ngumoha sannar kannski best.

Þeir, sem best þekkja til, telja að afrakstur unglingastarfs Liverpool hafi ekki í annan tíma skilað betri uppskeru en nú. Þeir leikmenn, sem á annað borð komi til álita í aðalliðshóp Liverpool, fái varla betri mann til að þroska hæfileikana en Andoni Iraola.

No comments yet