Rio Ngumoha varð í kvöld fimmti yngsti leikmaður sögunnar til þess að spila landsleik með A-landsliði Englendinga.
Rio, sem var nokkuð óvænt tekinn með til Bandaríkjanna með það í huga að gefa honum tækifæri ef það hentaði, var einn ellefu leikmanna sem Thomas Tuchel skipti inn á í hálfleik gegn Nýja Sjálandi.
Leikurinn fór fram í miklum hita og lauk með 1:0 sigri Englendinga. Rio þótti standa sig best af ensku leikmönnunum og fékk viðurkenningu tengda því. Hann er engu að síður ekki í aðalhópi Englendinga fyrir HM sem hefst í næstu viku.
Tækifæri hins unga kantmanns Liverpool í kvöld kom eflaust mörgum á óvart því Arne Slot, fyrrum stjóri Liverpool, gaf honum sárafá tækifæri fyrr en undir lok leiktíðar.
Rio, sem verður 18 ára þann 29. ágúst nk., er einn sex leikmanna sem tilnefndir eru sem “Young Player of the Year” hjá PFA, samtökum atvinnuknattspyrnumanna á Englandi.
No comments yet