Monday Night Football á Sky efndi til óformlegrar könnunar á meðal áhorfenda í kvöld, þar sem spurt var hvor þeirra tveggja nyti stuðnings áhorfenda, Arne Slot eða Mohamed Salah.
Það er skemmst frá því að segja að þetta varð algjört rótburst!
Alls sögðust 94% áhorfenda styðja Salah í gagnrýni hans á þá stöðu sem Liverpool er í þessa taka dagana.
Aðeins 6% sögðust styðja Slot og taka undir þá gagnrýni að færsla Salah á X í gær hafi verið ómakleg og illa tímasett.
Að sjálfsögðu eru það ekki stuðningsmenn Liverpool eða sjónvarpsáhorfendur sem stýra gangi mála á Anfield. Þessi niðurstaða endurómar hins vegar þá stemningu sem ríkt hefur í kringum félagið síðustu vikur.
No comments yet