Sala FSG á 30% hlut í Liverpool orðin að veruleika á 1,65 milljarð punda

Formlega hefur verið gengið frá sölu á 30% hlut í Liverpool Football Club af hálfu Fenway Sports Group, FSG. Kaupverðið er 1,65 milljarðar punda.

Verðmæti félagsins er því metið 5,5 milljarða punda - 18 sinnum hærra en þær 300 milljónir punda sem FSG greiddi fyrir Liverpool árið 2010.

Fyrir kaupunum fer fjárfestahópur undir forystu Amit Bhatia, en auk hans eru lykilmenn í hópnum Jeff Bezos, eigandi Amazon sem metinn er 4. ríkasti maður heims og Eduardo Saverin, sem stofnaði Facebook ásamt Mark Zuckerberg á sínum tíma.

Bhatia mun taka sæti í stjórn félagsins auk eiginkonu Saverin, Elaine. Einnig kemur í stjórn félagsins Bryan Baum, sem fer fyrir fjárfestingarfyrirtækinu K5 Sports, en kaup Bezos eru í gegnum það fyirtæki. Bezos tekur ekki sæti í stjórninni.

Bhatia nýtur stuðnings Mittal-fjölskyldunnar sem er á meðal eigenda ArcelorMittal-fyrirtækisins, sem er það stærsta í heiminum á sviði stálvinnslu og námuvinnslu.

Eignir Mittal-fjölskyldunnar eru metnar á 26 milljarða punda og auðæfi Saverin eru metin á 24,5 milljarða punda

Í samanburði við Bezoz eru þetta þó smáaurar því verðmæti eigna hans er talið um 200 milljarðar sterlingspunda.

Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.

Mynd: Amit Bhatia og Jeff Bezos eru á meðal kaupenda 30% hluta í Liverpool Football Club.

No comments yet