Salah settur út úr hópnum fyrir lokaleikinn?

Félagið hefur aldrei sent frá sér neitt um hvort Slot verður áfram eða ekki.

Færsla Mohamed Salah á X (áður Twitter) í gær hefur mælst mjög misjafnlega fyrir. Stuðningsmenn fylkja sér að baki honum á sama tíma og margir álitsgjafar setja stórt spurningamerki við tímasetninguna á færslunni.

Ekki fer leynt að Salah er í færslunni að skjóta á Slot opinberlega í annað sinn á þessari leiktíð. Þegar hann gerði slíkt hið sama í desember var hann tekinn út úr liðinu í næsta leik.

Á þessum tímapunkti er næsti leikur ekki bara einhver leikur. Það er lokaleikur hörmulegrar leiktíðar og um leið kveðjuleikur leikmanna eins og Salah og Andy Robertson. Alisson Becker gæti einnig verið að kveðja. Verður Salah tekinn aftur út úr liðinu þann 24. maí n.k.?

Færsla Salah, sem fjöldi núverandi og fyrrverandi leikmanna hefur “líkað” við, setur forvígismenn félagsins í afar erfiða stöðu.

Félagið hefur aldrei sent frá sér neitt um hvort Slot verður áfram eða ekki. Vel valdir blaðamenn hafa hins vegar verið fóðraðir á þeirri línu að Slot njóti fulls stuðnings félagsins.

Hvort sem við erum sammála því að Slot eigi að fá annað tækifæri eða eða ekki er augljóst að hann nýtur hvorki trausts leikmanna né stuðningsmanna.

En hver tekur við ef Slot fær sparkið?

Veðbankar eru með Luis Enrique í efsta sæti þótt sá kostur virðist býsna fjarlægur. Andoni Iraola (Bournemouth) kemur á hæla honum og þá Sebastian Höness (Stuttgart).

No comments yet