Samkomulag sagt í höfn um ráðningu Andoni Iraola

Samkvæmt heimildum Fabrizio Romano, sem er oftar en ekki með puttann á púlsinum langt á undan öðrum, er samkomulag í höfn um ráðingu Andoni Iraola sem næsta knattspyrnustjóra Liverpool.

Iraola vann þrekvirki með Bournemouth um þriggja ára skeið og undir hans stjórn hafnaði liðið í 6. sæti Premier League í vor og var ósigrað í síðustu 18 leikjunum í deildinni.

Guillem Balague, virtur greinandi og álitsgjafi, telur að Liverpool sé að fá mann sem gefur sig allan í verkefnið, lítur á Klopp sem fyrirmynd hvað varðar leikstíl og setur félagið framar öllu öðru.

“Hinn spænski Jürgen Klopp” eins og ágætur maður orðaði það.

No comments yet