Fréttir um sölu Fenway Sports Group, FSG, á 30% hlut í Liverpool Football Club til 1892 Holdings Ltd. komu kannski ekki svo á óvart í gær eftir að áformin höfðu kvisast út fyrir meira en viku.
Að baki 1892 Holdings Ltd. standa Amit Bhatia, fyrrum stjórnarformaður Queens Park Rangers, en auk hans eru lykilmenn í hópnum Jeff Bezos, eigandi Amazon sem metinn er 4. ríkasti maður heims og Eduardo Saverin, sem stofnaði Facebook ásamt Mark Zuckerberg á sínum tíma.
Ekki eru allir stuðningsmenn Liverpool jafn spenntir fyrir aðkomu þessara minnihlutaeigenda undir forystu Bhatia. Ferill hans hjá QPR er nefnilega vægast sagt skrautlegur. Kíkjum aðeins á hann.
QPR var í fjárhagskröggum þegar Formúlu 1-milljarðamæringarnir Bernie Ecclestone og Flavio Briatore keyptu félagið árið 2007. Bhatia tók sæti í stjórn félagsins sem varaformaður. Markmiðið var að tryggja QPR varanlegt sæti í Premier League.
Október 2007: John Gregory rekinn sem stjóri
Október 2007: Luigi Di Canio ráðinn stjóri
Maí 2008: Iain Dowie tekur við af di Canio
Október 2008: Dowie rekinn
Nóvember 2008: Paulo de Sousa ráðinn stjóri
Apríl 2009: De Sousa rekinn
Apríl 2009: Gareth Ainsworth ráðinn til bráðabirgða
Júní 2009: Jim Magilton ráðinn stjóri
Desember 2009: Magilton rekinn
Desember 2009: Paul Hart ráðinn stjóri
Janúar 2010: Hart rekinn
Mars 2010: Neil Warnock ráðinn stjóri
Maí 2011: QPR kemst í Premier League
Júní 2011: Bernie Ecclestone og Flavio Briatore selja sinn hlut til Tony Fernandes
Janúar 2012: Warnock rekinn
Janúar 2012: Mark Hughes ráðinn stjóri
Nóvember 2012: Hughes rekinn
Nóvember 2012: Harry Redknapp ráðinn stjóri
Maí 2013: QPR fellur úr Premier League eftir tvær leiktíðir
Maí 2014: QPR kemst aftur í Premier League
Febrúar 2015: Redknapp segir stöðu sinni lausri
Febrúar 2015: Chris Ramsey ráðinn stjóri
Maí 2015: QPR fellur úr Premier League eftir eina leiktíð
Nóvember 2015: Ramsey rekinn
Desember 2015: Jimmy Floyd Hasselbaink ráðinn stjóri
Nóvember 2016: Hasselbaink rekinn
Nóvember 2016: Ian Holloway ráðinn stjóri
Janúar 2018: Amit Bhatia verður stjórnarformaður
Maí 2018: Holloway hættir skv. samkomulagi
Maí 2018: Steve McLaren ráðinn stjóri
April 2019: McLaren rekinn
Júní 2019: Mark Warburton ráðinn stjóri
Maí 2022: Samningur hans ekki endurnýjaður
Júní 2022: Michael Beale ráðinn stjóri
Nóvember 2022: Beale hættir og tekur við Glasgow Rangers
Desember 2022: Neil Critchley ráðinn stjóri
Febrúar 2023: Critchley rekinn
Febrúar 2023: Gareth Ainsworth ráðinn (aftur, sjá 2009)
Janúar 2024: Ainsworth rekinn
Janúar 2024: Martí Cifuentes ráðinn stjóri
Júní 2025: Cífuentes hættir skv. samkomulagi
Júni 2025: Julien Stéphan ráðinn stjóri
Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.
Mynd: Amit Bhatia.
No comments yet