Sommerville í sigtinu ef West Ham fellur

Hafa verður þó í huga að hann (Bowen) verður þrítugur seint á árinu. Það yrði því meiriháttar frávik á innkaupastefnu Liverpool ef hann yrði fyrir valinu.

Einn af helstu veikleikum Liverpool-liðsins á þessari leiktíð hefur verið takmörkuð ógn af köntunum. Salah hefur misst hraða og Gakpo býr ekki yfir þeim hraða/hraðabreytingum sem góður kantmaður þarf að hafa.

Það er helst þegar Rio Ngumoah hefur fengið að spila sem einhver ógn hefur skapast. Það hefur bara verið sárasjaldan.

Crysencio Sommerville, sem hefur verið helsta ógnin í annars brothættu liði West Ham, er nú ítrekað nefndur sem valkostur fyrir Liverpool falli West Ham niður í Championship.

Kvittur hefur einnig verið á kreiki um að Liverpool sé spennt fyrir Jarrod Bowen ef West Ham fellur. Hafa verður þó í huga að hann verður þrítugur seint á árinu. Það yrði því meiriháttar frávik á innkaupastefnu Liverpool ef hann yrði fyrir valinu.

Sommerville verður 25 ára seint árinu og væri vissulega fýsilegri kostur en Bowen þótt ekki væri nema vegna aldursmunar. Hann skorar mun minna en Bowen en það vinnur kannski með honum að hann hollenskur eins og fleiri í herbúðum Liverpool.

No comments yet