Spunavélar slúðurheimsins eru á yfirsnúningi þessa dagana og ef eitthvað er að marka þær sögur sem berast frá Hollandi þá hefur Liverpool þegar samið við Arne Slot um starfslok. Slot hefur verið nefndur sem næsti stjóri Ajax í Hollandi.
Eins og við höfum áður greint frá hefur nafn Andoni Iraola, stjóra Bournemouth, komið oft upp í sögusögnum og nú heyrist víða að hann sé sá sem Liverpool vill fá í stað Slot.
Reynist þetta rétt má víst telja að bæði Richard Hughes og Michael Edwards hverfi einnig á braut, en þeir eru með samninga út næsta keppnistímabil eins og Slot.
Sú tilraun sem gerð var með þessa þrenningu, þ.e. yfirþjálfara og tvo hálfgerða yfirmenn knattspyrnumála hefur ekki virkað sem skyldi. Leikmannkaup síðasta sumars hafa ekki skilað tilætluðum árangri, m.a. vegna meiðsla, en leikmannasölur hafa ekki síður þótt misráðnar.
No comments yet