Stríður straumur úr leikmannahópnum

Allt bendir til þess að ekki færri en sjö leikmenn muni yfirgefa Liverpool í sumar, flestir eftir langan tíma hjá félaginu. Sumarið stefnir því í að verða býsna annasamt á leikmannamarkaðnum, rétt eins og fyrir ári.

Öllum er ljóst að Andy Robertson og Mo Salah eru á förum og með hverjum degi verður líklegra að Alisson Becker yfirgefi félagið og gangi til liðs við Juventus.

Aðrir sem kveðja Anfield verða væntanlega Joe Gomez, Curtis Jones, Wataru Endo og Federico Chiesa, auk þess sem framtíð Ibrahima Konate er í lausu lofti.

Giorgi Mamardashvili hefur einnig verið orðaður við vistaskipti en frammistaða hans hefur ekki þótt nægilega sannfærandi í fjarveru Alisson.

Mynd sem Virgil Van Dijk deildi á Instagram í morgun sýndi hann kveðja fjóra liðsfélaga sína, þá Salah, Robertson, Gomez og Alisson Becker.

No comments yet