Svo virðist sem örlaganornornirnar hafi haft heilmikil áhrif þegar niðurröðun leikja í Premier League á næstu leiktíð var kynnt í morgun.
Fyrsti leikur Liverpool verður á útivelli gegn Newcastle United og lokaleikur leiktíðarinnar verður á Anfield … gegn Bournemouth 30. maí. Hvað annað?
Liverpool hefur tvivegis á innan við ári hirt leikmann sem Newcastle taldi sig vera að fá (Ekitike og Muñoz) auk þess að hafa af þeim Alexander Isak.
Flestum er svo eflaust kunnugt að Andoni Iraola stýrði Bournemouth í 3 ár áður en Liverpool réði hann í kjölfar brottrekstrar Arne Slot.
Þrír stórleikir eru á Anfield í október og nóvember; gegn Manchester City, Arsenal og Manchester United.
Leikjaniðurröðunina má sjá hér í heild.
Myndin: Ngumoha fagnar sigurmarki Liverpool gegn Newcastle United á síðustu leiktíð.
No comments yet