Szoboszlai á hæla Gerrard

"Undantekningalítið hefur hann verið langbesti leikmaður liðsins ..."

Ef einhver leikmaður Liverpool getur borið höfuðið hátt eftir leiktíðina, sem nú er að ljúka, er það Ungverjinn Dominik Szoboszlai. Margir telja hann sjálfkjörinn næsta fyrirliðaefni liðsins.

Szoboszlai hefur skorað fjögur mörk beint úr aukaspyrnum á leiktíðinni - fleiri en nokkur annar leikmaður í deildinni.

Undantekningalítið hefur hann verið langbesti leikmaður liðsins og tilþrif hans minna oftar en ekki á Steven Gerrard þegar hann var upp á sitt besta.

Szoboszlai hefur í vetur skorað alls 13 mörk og átt 10 stoðsendingar. Hann er fyrsti miðvallarleikmaður Liverpool til að ná tug marka og stoðsendinga á einni leiktíð frá því Steven Gerrard gerði slíkt leiktíðina 2013-14 (14 mörk og 14 stoðsendingar).

Kannski ekkert undarlegt að þeim sé stundum líkt saman.

No comments yet