Dominik Szoboszlai hefur framlengt samning sinn við Liverpool til ársins 2031 og þau tíðindi eru í meira lagi kærkomin á sumri þar sem slúðurkvarninar hafa verið á yfirsnúningi.
Við sögðum í gær frá því að Joao Gomes væri einn þeirra leikmanna sem Liverpool hefði auga á. Sá póstur hafði varla fyrr farið í loftið þegar tilkynnt var að Aston Villa hefði klófest hann í kjölfar sölunnar á Youri Tielemans til Manchester United.
Seint í gærkvöld bárust svo fréttir af því að Liverpool væri mjög áhugasamt um japanska landsliðsmanninn Kaishu Sano hjá Mainz 05 í þýsku Bundesligunni en fleiri lið eru á eftir honum. Sano er 25 ára afturliggjandi miðjumaður og skoraði sitt eina landsliðsmark til þessa gegn Brasilíu á HM.
Ef af verður er Sano þriðji Japaninn til að leika með Liverpool á síðustu árum í kjölfar þeirra Wataru Endu og Takumi Minamino.
Þá barst einnig kvittur þess efnis að Liverpool hefði sett sig í samband við Bournemouth í tengslum við kantmanninn Rayan Rocha, sem suðurstrandarliðið keypti frá Vasco de Gama í janúar. Rayan sló strax í gegn hjá Iraola í Bournemouth og vann sér jafnframt sæti í brasilíska landsliðinu á HM.
Rayan lék 15 leiki fyrir Bournemouth á síðustu leiktíð, skoraði fimm mörk og átti tvær stoðsendingar.
Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.
Szoboszlai endurnýjar til 2031 en slúðrið nær nýjum hæðum
Seint í gærkvöld bárust svo fréttir af því að Liverpool væri mjög áhugasamt um japanska landsliðsmanninn Kaishu Sano hjá Mainz 05 ...
No comments yet