Takk Liverpool, en nei takk: Diomande, Zubimendi, Caicedo og Tchouameni

Altalað er núna að umboðsskrifstofa Diomande hafi notað áhuga Liverpool gagngert til þess að egna gildruna fyrir PSG og fá Evrópumeistarana til að bjóða betur.

Ekkert verður af því að Yan Diomande gangi til liðs við Liverpool eins og heimildir okkar höfðu hermt, en hann var sá leikmaður sem Liverpool lagði mesta áherslu á að klófesta í sumar.

Diomande ætlar sér að fara til PSG ef hann hefur vistaskipti frá RB Leipzig. Þrátt fyrir að samningur um kjör leikmannsins hjá Liverpool lægi fyrir náðust ekki samningar á milli félaganna.

RB Leipzig stendur fast á því að selja hann ekki fyrir minna en 100 milljónir punda, sem er 20% meira en Liverpool var tilbúið að greiða.

Altalað er núna að umboðsskrifstofa Diomande hafi notað áhuga Liverpool gagngert til þess að egna gildruna fyrir PSG og fá Evrópumeistarana til að bjóða betur.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Liverpool missir af leikmanni, sem félagið leggur ofuráherslu á að tryggja sér.

Liverpool taldi sig hafa tryggt sér Martin Zubimendi sumarið 2024 en hann hætti við á elleftu stundu en gekk svo til liðs við Arsenal síðasta sumar.

Liverpool taldi sig einnig hafa tryggt sér Moises Caicedo frá Brighton sumarið 2023 fyrir 111 milljónir sterlingspunda.  Chelsea yfirtrompaði og tryggði sér leikmanninn fyrir 115 milljónir punda.

Svipaða sögu var að segja af  Aurélien Tchouaméni sem Liverpool ætlaði að krækja í sumarið 2022. Hann tók Real Madrid fram yfir Liverpool.

Margir ergja sig skiljanlega yfir endurtekinni atburðarás en ekki má gleyma því að Liverpool hefur einnig verið hinum megin borðsins, nú síðast með Victor Muñoz og Hugo Ekitike í fyrra.

No comments yet