Enginn leikmaður frá Liverpool er í 26 manna enska landsliðshópnum sem valinn hefur verið fyrir heimsmeistaramótið í sumar. Þetta er í fyrsta sinn í 40 ár sem enginn leikmaður Liverpool fer á HM.
Mörgum þykir hins vegar dálitið súrt að tveir fyrrum Liverpool-menn eru í hópnum. Annars vegar Jordan Henderson, sem verður 36 ára á þjóðhátíðardaginn - 17. júní, og hins vegar hinn ungi Jarrell Quansah sem Liverpool seldi til Bayer Leverkusen í fyrra og vakti furðu margra. Quansah hafði þá verið hjá Liverpool með einum eða öðrum hætti allt frá fimm ára aldri.
Henderson hefur átt flotta leiktíð með Brentford, þar sem reynsla hans og hvatning hefur verið dýrmæt. Quansah, sem varð 23 ára í janúar, átti frábæra leiktíð með Bayer Leverkusen, lék 28 leiki í Bundesligunni og skoraði 4 mörk.
Liverpool er með endurkauparétt á Quansah á næsta ári fyrir 52 milljónir punda auk bónusgreiðslna. Quansah var seldur á 30 millj. punda eða á nánast sama verði og greitt var fyrir Jeremie Frimpong, sem kom í hina áttina frá Leverkusen, auk bónusgreiðslna upp á allt að 5 millj. punda.
Hvort þessi endurkauparéttur verður nýttur er svo önnur saga. Liverpool hefur verið að sópa að sér ungum miðvörðum eins og Giovanni Leoni og Jeremie Jacquet, sem báðir eiga eftir njóta handleiðslu Virgil Van Dijk á næstu leiktíð.
No comments yet