Ef eitthvað er að marka fréttir undanfarna daga virðist sem Liverpool ætli að reyna að krækja í tvo vængmenn frá PSG en ekki einn.
Bradley Barcola hefur verið í umræðunni í margar vikur. Hann er sagður hafa samþykkt samningsdrög frá Liverpool en verðmiði PSG hefur komið í veg fyrir að kaup gangi í gegn. Viðræður hafa staðið yfir lengi.
Ibrahim Mbaye er nú sagður hafa samþykkt samningsdrög frá Liverpool en PSG hefur ekki gefið grænt ljós á söluna. Mbaye er aðeins 18 ára gamall og hefur verið í leikmannahópi Evrópumeistaranna án þess að leika mjög mikið en er þó með 34 leiki skráða á tveimur árum.
Jones, Gakpo, Chiesa, Elliott og Bajcetic seldir?
Flest bendir til þess að Curtis Jones sé á leið til Inter Milan og fari svo að báðir nefndir vængmenn PSG endi á Anfield er ekki ólíklegt að Cody Gakpo verði seldur til Spurs.
Þá bendir allt til þess að bæði Federico Chiesa og Harvey Elliott yfirgefi Liverpool auk Stefan Bajcetic, sem er í sigtinu hjá Getafe. Wataru Endo er einnig nefndur líklegur til brottfarar.
Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.
No comments yet