Ungstirnið til Leverkusen en Liverpool getur virkjað kaupákvæði

Eichhorn varð í ágúst í fyrra yngsti leikmaðurinn í byrjunarliði í þýsku 2. deildinni (Bundesliga 2), aðeins 16 ára og 48 daga gamall.

Bayer Leverkusen hefur gengið frá kaupum á hinum stórefnilega 16 ára gamla Kennet Eichhorn frá Hetha Berlin. Eichhorn var bitbein Manchester City og Liverpool.

Í samningi Eichhorn við Leverkusen er hins vegar ákvæði sem gerir Liverpool kleift að kaupa leikmanninn síðar. Eftir Brexit geta ensk félög nefnilega ekki keypt erlenda leikmenn fyrr en þeir hafa náð 18 ára aldri. Því var þessi leið farin.

Eichhorn varð í ágúst í fyrra yngsti leikmaðurinn í byrjunarliði í þýsku 2. deildinni (Bundesliga 2), aðeins 16 ára og 48 daga gamall.

Eichhorn vakti gríðarlega athygli á nýliðinni leiktíð fyrir þroskaða frammistöðu sem afturliggjandi miðjumaður. Hann skoraði fyrsta deildarmark sitt fyrir Hertha núna í maí og varð þar með einnig yngstur til þess í sögu Bundesliga 2. Áður hafði hann skorað í bikarnum.

Það skemmtilega er að Manchester City hafði hugsað sér að “fóstra” hann hjá Bayer Leverkusen þar til hann verður 18 ára og fá hann svo yfir til Englands. Mikil og góð samskipti Liverpool og Leverkusen greiddu hins vegar leiðina að þessari ákjósanlegu niðurstöðu.

No comments yet