"Að vinna nokkra leiki hér og þar er ekki það sem Liverpool ætti að snúast um. Öll lið vinna leiki," sagði Mohamed Salah í færslu á X (áður Twitter) fyrr í dag.
Ekki dylst neinum að þótt færslan sé orðuð kurteislega er Salah langt frá því að vera sáttur og auðvelt er að lesa úr henni gagnrýni á þá sem stýra félaginu innan vallar sem utan.
Nokkrir núverandi og fyrrverandi leikmenn hafa þegar sett “like” á færslu hans og sett inn ummæli og ekki verður betur séð en að að uppreisnarstemningar gæti í búningsklefanum. Á meðal þeirra eru þessir:
• Dominik Szoboszlai
• Andy Robertson
• Hugo Ekitike
• Milos Kerkez
• Curtis Jones
• Jeremie Frimpong
• Wataru Endo
• Giovanni Leoni
• Harvey Elliott
• Jarrell Quansah
• Gini Wijnaldum
• Roberto Firmino
Salah sagðist hafa fylgst með því hvernig stuðningsmenn breyttust úr efasemdarmönnum yfir í það að hafa trú á að árangur gæti náðst. "Frá því að hafa trú yfir í að verða meistarar. Það útheimti mikla vinnu og ég gerði alltaf allt sem ég gat til að hjálpa félaginu að ná þeim árangri. Ekkert fyllir mig meira stolti en það."
"Að sjá liðið gefa eftir og tapa enn einu sinni á þessu tímabili var mjög sársaukafullt og ekki það sem aðdáendur okkar eiga skilið. Ég vil sjá Liverpool á ný verða þungarokks-sóknarliðið sem andstæðingarnir óttast og aftur lið sem vinnur titla," sagði Salah, sem sat á varamannabekk Liverpool í gær en kom inn á þegar stundarfjórðungur var eftir af venjulegum leiktíma.
"Það er fótboltinn sem ég kann að spila og það er sjálfsmyndin sem þarf að endurheimta og varðveita til frambúðar. Það er ekki hægt að semja um neinar málamiðlanir. Allir sem ganga til liðs við þetta félag verða að aðlagast þessari sjálfsmynd. Eins og ég hef alltaf sagt, þá er það lágmark að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili og ég mun gera allt sem ég get til að láta það gerast."
Salah sagði Liverpool alltaf verða félag sem hefði skipt hann og fjölskyldu hans miklu. "Ég vil að Liverpool verði sigursælt löngu eftir að ég verð farinn."
No comments yet