Þeir eru margir sem hafa velt því upp á leiktíðinni sem senn fer að ljúka (sem betur fer segja stuðningsmenn Liverpool væntanlega) hvort úthaldsþjálfun liðsins sé ábótavant.
Úthaldsleysi var eitt það fyrsta sem við veittum athygli strax í upphafi leiktíðar. Leikmenn virtust ítrekað sprungnir á limminu síðasta stundarfjórðung leiktímans. Alistair Mac Allister var t.d. trekk í trekk eins og andstuttur keðjureykingamaður í seinni hálfleik.
Afleiðingarnar af þessu þrekleysi létu heldur ekki á sér standa. Liverpool missti ítrekað jafntefli niður í tap eða sigur niður í jafntefli á allra síðustu mínútum leikja. Þessi glötuðu stig vega þungt þegar upp er staðið.
Hjá Liverpool eru sérfræðingar á öllum sviðum að störfum og því er eðlilegt að spyrja hvernig það megi vera hjá svona stóru liði að grundvallaratriði eins og úthald sé ekki í lagi.
Úthaldslausir Englandsmeistarar?
Þessi glötuðu stig vega þungt þegar upp er staðið.
No comments yet