Van Dijk að slá mínútumet Carraghers

Nái Virgil Van Dijk að spila 29 mínútur eða meira á móti Aston Villa í kvöld slær hann met sem Jamie Carragher setti leiktíðina 2006-2007.

Carragher lék þá alls 4.789 mínútur í öllum mótum. Það samsvarar 53 leikjum í heild sinni (90 mín.).

Van Dijk hefur þegar spilað 4.761 mínútu á þessari leiktíð og þarf því 29 mínútur til að fara fram úr Carragher.

Van Dijk hefur á leiktíðinni verið gagnrýndur fyrir að vera talsvert frá sínu besta. Hægt er að taka undir það í mörgum tilvikum en hann er þó alltaf heill og spilar svo gott sem alla leiki.

Van Dijk verður 35 ára í sumar.

No comments yet