Að öllu óbreyttu verður Virgil Van Dijk síðasti móhíkaninn úr gullaldarliði Jürgen Klopp þegar Premier League-leiktíðinni lýkur þann 24. maí nk.
Ljóst er að Mohamed Salah og Andy Robertson munu róa á ný mið og líklegt er talið að Alisson Becker muni fylgja þeim en hann hefur sterklega verið orðaður við Juventus.
Þar með er Van Dijk einn eftir af því liði sem Klopp byggði upp að stofni til á árunum 2016-18. Undir stjórn Klopp náði Liverpool 97, 99 og 92 stigum í deildinni árunum 2019-2022, en vann samt aðeins einn titil.
Til að setja þetta í samhengi má nefna að Liverpool vann titilinn í fyrra með 84 stigum og Arsenal, sem nú leiðir kapphlaupið um Englandsmeistaratitilinn, getur mest náð 85 stigum í vor
Það er í raun með ólíkindum að það lið Liverpool, sem margir telja sterkustu útgáfu þess á þessum árum, hafi aðeins einu sinni verið þannig skipað og það í sjálfum úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu gegn Spurs 2019:
Alisson; Alexander-Arnold, Matip, Van Dijk, Robertson; Henderson, Fabinho, Wijnaldum; Mane, Firmino, Salah.
Van Dijk síðasti móhíkaninn hans Klopps?
Undir stjórn Klopp náði Liverpool 97, 99 og 92 stigum í deildinni árunum 2019-2022 ...
No comments yet