Verðmæti Liverpool Football Club hefur 17-faldast frá því núverandi eigendur félagsins, Fenway Sports Group (FSG), keyptu það árið 2010 fyrir 300 milljónir punda.
Skv. fjármálaritinu Forbes er verðmæti félagsins í dag metið á 5,2 milljarða punda. Þetta nýjasta verðmat kemur í kjölfar þeirra frétta að FSG hyggist e.t.v. selja ca. 30% hlut í félaginu.
Til sögunnar er nefndur kaupendahópur undir forystu Amit Bhatia, sem fyrr í vikunni tilkynnti að hann væri ekki lengur á meðal eigenda Queens Park Rangers í London.
Bhatia nýtur stuðnings Mittal-fjölskyldunnar sem er á meðal eigenda ArcelorMittal-fyrirtækisins, sem er það stærsta í heiminum á sviði stálvinnslu og námuvinnslu. Eignir Mittal-fjölskyldunnar eru metnar á 26 milljarða punda.
Það vekur ekki minni athygli að á meðal hugsanlegra meðeigenda, sem Bhatia hefur leitað til, er Jeff Bezoz, eigandi Amazon-risafyrirtækisins. Bezoz er 4. ríkasti maður veraldar en er ekki sagður hafa gefið afgerandi svar varðandi fjárfestingu í Liverpool.
FSG hefur frá upphafi lagt ofurkapp á að reka Liverpool með sjálfbærum hætti og forðast skuldsetningu. Undir stjórn þessara eigenda hefur Anfield verið stækkaður um 17.000 sæti, auk þess sem byggt hefur verið upp stórglæsilegt æfingasvæði. Samhliða þessu hefur félaginu verið komið í fremstu röð á ný.
Margir telja að FSG kunni að líta svo á að öll helstu markmið, sem sett voru við kaupin á Liverpool, hafi nú náðst. Til að taka næsta skref þurfi einfaldlega aðkomu enn fjársterkari aðila.
Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.
Mynd: John W. Henry, aðaleigandi FSG, og eiginkona hans, Linda Pizzuti.
No comments yet