Væri Alonso rétti maðurinn til að taka við af Slot?

Samkvæmt heimildum okkar í Liverpool hefur þegar verið gengið frá starfslokum Arne Slot í vor þótt slíkt verði ekki staðfest fyrr en eftir lokaleikinn gegn Brentford.

Xavi Alonso var til skoðunar þegar Klopp hætti, en gaf þá ekki færi á sér vegna skuldbindinga við Bayer Leverkusen. Hann tekur við stjórastöðunni ef marka má heimildarmann okkar. Verði það að veruleika mun það án efa gleðja stuðningsmenn, sem hafa flestir snúið baki við Slot.

Þessi tíðindi berast á sama tíma og kvittur hefur verið á kreiki um að Chelsea hafi boðið Alonso að taka við liðinu, hvað sem kann að vera hæft í því.

Því fer þó fjarri að allir séu sannfærðir um að Alonso sé rétti maðurinn til að endurræsa Liverpool. Margir telja hann allt of “passívan” og vilja fá einhvern sem smitar jafn mikið út frá sé og Klopp. Luis Enrique kannski?

Leiktíðin, sem nú er senn á enda, hefur reynt mjög á Slot. Ótímabært andlát Diogo Jota setti allan undirbúning fyrir keppnistímabilið úr skorðum. Róttækar breytingar urðu á leikmannahópnum og makalaus óheppni með meiðsl bættu ekki úr skák.

Fjölskylda Slot hefur allan tímann búið áfram í Hollandi og hann notað hvert tækifæri til að rækta hana. Tíðar ferðir hans þangað hafa pirrað marga stuðningsmenn, sem hafa sýnt fjölskylduaðstæðum hans lítinn skilning.

Sami heimildarmaður okkar telur að Michael Edwards hverfi á braut í sumar en að Richard Hughes verði áfram yfirmaður knattspyrnumála. Hann hefur verið sterklega orðaður við starf í Sádí Arabíu en fær nú það verkefni að styrkja liðið í samráði við Alonso.

2 Comments

  1. Heimir Eyvindarson
    Eins mikið og ég dáði Alonso á vellinum þá hef ég ekki verið allt of spenntur fyrir honum sem stjóra, en hvað veit ég? Þetta eru samt góðar fréttir. Vonandi reynist hann rétti maðurinn. Hann er allavega í miklum metum hjá stuðningsmönnum, það er góð forgjöf.
  2. Siggi Sverris
    Þú ert ekki einn um að hafa efasemdir um Alonso.