FSG að selja allt að 30% hlut í Liverpool - Jeff Bezoz meðal fjárfesta

Markmiðið með sölunni er klárlega að fá inn sterka fjárfesta og greinendum þykir ljóst að þetta sé aðeins fyrsta skref FSG í að selja félagið að fullu.

Margt þykir benda til þess að Fenway Sports Group, FSG, eigendur Liverpool Football Club hyggist selja allt að 30% af sínum hlut til nýrra fjárfesta, sem m.a. eru Jeff Bezoz, eigandi Amazon og talinn 4. ríkasti maður heims.

Jafnvel er talið að samningar þar að lútandi verði undirritaðir í þessri viku.

Markmiðið með sölunni er klárlega að fá inn sterka fjárfesta og greinendum þykir ljóst að þetta sé aðeins fyrsta skref FSG í að selja félagið að fullu.

Gangi það eftir er hægt að hrósa FSG fyrir gott uppbyggingarstarf á Anfield samhliða því að 17-falda verðmæti félagsins frá því FSG keypti Liverpool á 300 milljónir sterlingspunda árið 2010.

Fyrir fjárfestahópnum, sem er að kaupa allt að 30% hluta, fer Amit Bhatia, sem tilkynnti fyrir stuttu að hann væri ekki lengur á meðal eigenda Queens Park Rangers í London.

Bhatia nýtur stuðnings Mittal-fjölskyldunnar sem er á meðal eigenda ArcelorMittal-fyrirtækisins, sem er það stærsta í heiminum á sviði stálvinnslu og námuvinnslu. Eignir Mittal-fjölskyldunnar eru metnar á 26 milljarða punda.

Í samanburði við Bezoz eru það þó smáaurar því verðmæti eigna hans er talið um 210 milljarðar sterlingspunda.

Auðævi Bezoz samsvara 300-földum tekjum Liverpool Football Club á rekstrarárinu 2024-2025!

Sjá póst okkar frá 22. júlí sl.: Verðmætið 17-faldast á 16 árum!

Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.

Mynd: John W. Henry, aðaleigandi FSG, og eiginkona hans, Linda Pizzuti.

No comments yet