Leikmenn þögulir sem gröfin um brottrekstur Slot

Enginn sagði “Takk fyrir samfylgdina” eða “Gangi þér allt í haginn á nýjum slóðum.”

Það vakti óskipta athygli margra stuðningsmanna Liverpool, sem fylgjast með hverju fótmáli leikmanna á samfélagsmiðlum, að ekki heyrðist múkk frá neinum þeirra í gær í kjölfar þeirra frétta að Arne Slot hefði verið sagt upp störfum.

Enginn sagði “Takk fyrir samfylgdina” eða “Gangi þér allt í haginn á nýjum slóðum.”

Þetta er í hrópandi ósamræmi við viðbrögð leikmanna við umdeildri færslu Mohamed Salah eftir leikinn gegn Aston Villa, þar sem margir núverandi og fyrrverandi leikmenn settu “like” á færsluna eða tjáðu sig um hana.

Þetta þykir renna frekari stoðum undir þær kenningar að innistæða Slot hjá leikmönnum hafi verið orðið býsna rýr undir það síðasta og að færsla Salah hafi í raun endurómað skoðanir flestra leikmanna.

Heimildarmaður okkar í Liverpool segist sannfærður um að leitað hafi verið álits hjá lykilleikmönnum áður en endanleg ákvörðun var tekin um uppsögn Slot. Sú ákvörðun virðist hafa verið tekin eftir leikinn gegn Aston Villa þann 15. maí sl. þótt Slot hafi síðast á föstudag talið sig öruggan í starfi.

Sjá frétt okkar frá 21. maí.


Á meðan Slot var hjá Liverpool bjó hann í bænum Hale, sem er rétt við Manchester-flugvöll. Fjöldi leikmanna Manchester-liðana býr þar eða í nærliggjandi bæjum og svo er einnig farið um t.d. Virgil van Dijk. Fjölskylda Slot var allan tímann í Hollandi, m.a. vegna skólagöngu barna hans.

Af þessum sökum fannst mörgum stuðningsmönnum Liverpool Slot hafa litla sem enga tengingu við borgina og fólkið sem þar býr.

Þjálfurum yngri liða Liverpool fannst hann sömuleiðis sýna þeirra starfi algert áhugaleysi, þar sem hann lét sjaldan eða aldrei sjá sig á æfingasvæði þeirra. Þetta viðhorf þjálfara yngri liðana er ekki nýtilkomið, fjarvera Slot pirraði þá alveg frá því hann var ráðinn.



No comments yet