Ört vaxandi gremju gætir orðið á meðal stuðningsmanna Liverpool yfir aðgerðaleysi félagsins í sumarglugganum. Reyndir fjölmiðlamenn klóra sér jafnframt i hausnum yfir ástandinu nú þegar tæpur mánuður er í fyrstu umferð Premier League.
Úr hópi þeirra heyrast raddir sem segja stöðuna í dag um margt minna á ástandið eins og það var undir lokin hjá Brendan Rodgers. Ýmsum finnst eins og Andoni Iraola sé í raun algerlega berskjaldaður fyrir þeim áskorunum sem hans bíða í haust. Iraola hefur ítrekað vakið athygli á því að þétta þurfi hópinn umtalsvert.
Sjá nýlega frétt okkar:
Höddi Magg: Skrýtið andrúmsloft á bak við tjöldin hjá Liverpool
Flestir eru sammála því að Liverpool þurfi að fá a.m.k. 3-4 lykilleikmenn til viðbótar, ef ekki fleiri, ætli liðið sér að blanda sér í titilbaráttu.
Staða hægri bakvarðar er óleyst vandamál og glæpsamlegt að setja mann eins og Szoboszlai aftur og aftur í það hlutverk. Frimpong höndlar verkefnið ekki og Connor Bradley á langt í land eftir alvarleg meiðsl.
Eftir brotthvarf Konate eru Van Dijk og Gomez einu reyndu miðverðir félagsins. Annar frábær en orðinn 35 ára og hinn 29 ára meiðslapési.
Miklar vonir eru bundnar við hinn tvítuga Jérémy Jacquet sem og hinn 19 ára Giovanni Leoni, sem sleit liðbönd í hné í fyrsta leik í fyrra. Ósanngjarnt er þó að treysta á þá til að fylla skarðið þegar reynslan er ekki meiri en raun ber vitni.
Við sögðum um daginn frá áhuga Lierpool á miðverðinum Ilya Zabarnyi, sem PSG keypti frá Bournemouth í fyrra. Hann er enn sagður í sigtinu enda þekkir Iraola hann af góðu einu.
Staða hægri vængmanns er enn óleyst þótt félagið hafi vitað af brotthvarfi Mohamed Salah í meira en hálft ár. Tilraunir til að ná Yan Diomande runnu út í sandinn og svo virðist sem hugarfar hans sé e.t.v. ekki það ákjósanlegasta.
Enginn reyndur miðherji er fyrir hendi til að létta á Alexander Isak eftir að Hugo Ekitike sleit hásin.
Svo ræða menn einnig um að fá annan markvörð í stað Mamardashvili, sem hefur átt gloppótta leiki.
Það er úr vöndu að ráða, svo mikið er víst.
Ferðir og miðar á leiki í Premier League með Premierferðum/TA Sport Travel.
No comments yet